GUMMIGIGA
Guðmundur Jóhann Guðlaugsson · 19 ára · Reykjavík
Olíumálverk af GummiGiga með bleika sturtuhettu og baðbursta á opnum vegi ● GUMMIGIGA00:00:00:00

Ég hleyp í handklæði þangað til skólakerfið breytist.

@gummigiga1,2 milljónir áhorfa síðustu 90 daga. Eitt markmið: skólakerfi þar sem krakkar læra og finna sjálfa sig.

● Um mig
▶ PLAY11.06.2017
▶ PLAY20.09.2017
▶ PLAYHEIMAMYND
▶ PLAY15.10.2018
▶ PLAYDAGUR 41 · 2026
▶ PLAYPERLAN · 2026

Ég var orkumikill krakki sem lifði fyrir fótbolta.

Í kringum þriðja bekk missti ég vinina. Árum saman var ég einn.

Ég spilaði tölvuleiki frá morgni til kvölds. Herbergið mitt var allur heimurinn.

Nýr skóli, svo kennarar sem höfðu trú á mér. Í 9. bekk eignaðist ég fyrstu alvöruvinina í um sjö ár.

Framhaldsskólinn byrjaði vel. Svo fór allt út af sporinu. Ég stofnaði fyrirtæki og hætti í skóla í janúar 2026.

Nú hleyp ég í fullu starfi. Í handklæði. Þangað til skólakerfið hlustar.

Skólinn á að vera staðurinn þar sem krakkar finna sjálfa sig. Ekki þar sem þeir týnast.

Ég er að byggja upp nógu stóran hóp fylgjenda til að ná til stjórnmálafólksins sem getur breytt kerfinu. Ég tala fyrir þá sem geta ekki talað nógu hátt.

● Tölfræðin okkar í seríunni

Handklæði. Sími. Nokkrir mánuðir.

Það sem einn strákur í handklæði gerði með síma og Instagram-reikning.

1.200.000
áhorf síðustu 90 daga
23,9 þús.
fylgjendur á Instagram
60
dagar að ná um 23.000 fylgjendum
10 fet
hlaupin fyrir hvern nýjan fylgjanda
~30
hlupu Handklæðasprettinn með mér 10.10.2026
Heimild: Instagram, október 2026.
● Skólakerfið

Heimurinn breyttist. Kennslustofan varla.

Skólar um allan heim eru enn skipulagðir á ótrúlega svipaðan hátt: bekkir, stundatafla með fögum, einn kennari á hvern bekk.Endursagt eftir UNESCO, Reimagining our futures together (2021)

Í heiminum: nær engar framfarir frá 2015
0%10%20%30%20002005201020152020202427,2%17,4%16,8%273 milljónir utan skóla (2024)
Hlutfall barna og ungmenna á grunn- og framhaldsskólaaldri í heiminum sem eru ekki í skóla, 2000–2024. Heimild: Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um heimsmarkmiðin 2026 (gögn UNESCO).
39%

ungmenna í heiminum ljúka ekki framhaldsskóla (2024).

Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um heimsmarkmiðin 2026
2 af 5

15 ára ungmennum í OECD-ríkjunum hafa enga skýra mynd af framtíðarstarfi. Hlutfallið hefur aukist um meira en helming frá 2018.

OECD, PISA 2022
3.

Sjálfsvíg eru þriðja algengasta dánarorsök fólks á aldrinum 15–29 ára í heiminum og eitt af hverjum sjö ungmennum á aldrinum 10–19 ára glímir við geðröskun.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), 2025
Líður þér illa? Hjálparsími Píeta, 1799, er opinn allan sólarhringinn. Í neyð hringdu í 112.

Of margir krakkar fara úr skóla án þess að vita hverjir þeir eru eða hvað tekur við. Ég vil að skólinn sé staðurinn þar sem þeir komast að því.